top of page

Starfsemi Hundaræktarinnar í Dalsmynni stöðvuð

  • Hundaheimar
  • Apr 18, 2018
  • 1 min read

Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um stöðvun starfsemi Hundaræktarinnar í Dalsmynni á grundvelli laga um velferð dýra. Ástæða stöðvunar er að kröfur stofnunarinnar um varanlegar úrbætur hafa ekki verið virtar, einkum varðandi þjálfun, umönnun og umhirðu hundanna þ.m.t. hreinlæti og skráningar. Viðhaldi húsnæðis var sömuleiðis ábótavant. Aðgerðir og áætlanir vegna ormameðhöndlunar hunda ásamt sýnatökum voru sömuleiðis ekki fullnægjandi.

Með ákvörðuninni er starfsemin í hundahúsum að Dalsmynni bönnuð, þ.m.t. innflutningur hunda, pörun, ræktun, got og annað hundahald sem ætlað er til ræktunarinnar eða tengist starfseminni, sem og pössun og geymsla á hundum.

Óheimilt verður að nýta húsin undir hundahald nema að undangenginni úttekt stofnunarinnar þar sem viðhald og ástand húsa sem notuð hafa verið undir starfsemina er ekki viðunandi m.t.t. þrifa og sótthreinsunar, sérstaklega út frá smiti með orminum Strongyloides stercoralis.

Hundaræktuninni hefur verið veittur frestur til eins mánaðar til að ráðstafa hundum að Dalsmynni og komast þannig hjá vörslusviptingu hunda af hálfu Matvælastofnunar.


 
 
 

Comments


Um okkur

Hundaheimar.is var stofnað í þeim tilgangi að.....

Fréttir

Lumar þú á frétt sem þig langar til að láta vita af?

Greinar

Langar þig til að skrifa greinar inn á hundaheimum.is?

Auglýsingar

Hefur þú áhuga á að auglýsa hjá okkur ?

© 2019 hundaheimar.is. Allur réttur áskilinn

bottom of page